Vefur ÍÞróttaskotfélags Akureyrar 

Valmynd 
Bullet1 Forsíða
Bullet1 Um ÍSA
Bullet1 Spurt og svarað
Bullet1 Meðlimir
Bullet1 Mæla með okkur
Bullet1 Leita á skotfimi.is
Bullet1 Tenglar
 
Efnisyfirlit 
Bullet1 Fréttir
Bullet1 Fróðleikur
Bullet1 Haglagreinar
Bullet1 Kynningar
Bullet1 Loftgreinar
Bullet1 Sálfræði
Bullet1 Skíðaskotfimi
Bullet1 Tæki og Tól
 
Gagnlegt 
Bullet1 Þínar stillingar
Bullet1 Gerast áskrifandi
Bullet1 Útskráning
Bullet1 Myndasafn
Bullet1 Smáauglýsingar
 
Upplýsingar 
Bullet1 Lög STÍ
Bullet1 Afreksstefna STÍ
 
Fréttabréfið 
Þú ert ekki skráður inn, en þú getur samt verið áskrifandi að fréttabréfinu okkar.



 
Á síðunni núna 
áskrifendur: 2067
gestir inni: 0
áskrifendur inni: 0

Þú ert óskráður notandi. Hægt er að gerast meðlimur með því að smella hérna

 
Síðuhöfundar 
Félagið sem hefur umsjón með skotfimi.is 
Leit 

 
 

Nýjustu fréttirnar: 


Ásgeir með silfur í München !!!
Ásgeir er í 3.-4.sæti fyrir final í loftskammbyssu !
Tímasetning á mótinu í Þýskalandi
Ásgeir keppir í Þýskalandi á föstudag og laugardag
Frétt á heimasíðu STÍ í dag.
Guðmundur Helgi sigraði í rifflinum í gær
Ásgeir nálægt Íslandsmeti í dag
Opið á Álfsnesi og Landsmót í Egilshöll
Lagafrumvarp að drepa skotíþróttir
Æfing fyrir loftbyssumótið
 

Keppnisgreinar í skotfimi

Um Skotíþróttasamband Íslands (STÍ)
Skotíþróttasamband Íslands (STÍ) er æðsti aðili skotíþróttarinnar innan vébanda íþróttasambands Íslands (ÍSÍ). Félög sem stunda skotíþróttir af einhverju tagi geta orðið aðilar að Skotíþróttasambandinu séu félögin að keppa samkvæmt lögum ISSF sem er Alþjóða skotíþróttasambandið. Skotsamband Íslands er ennfremur aðili að Evrópuskotsambandinu (ESC) og Skotsambandi Norðurlands (NSR). Íþróttaskotfélög hér á landi þurfa að sækja um viðurkenningu til Ríkislögreglustjóra og uppfylla ýmis skilyrði. Skotsvæði íþróttaskotfélaga fást ekki viðurkennd nema félagið sé aðili að Skotíþróttasambandi Íslands (STÍ) og Íþróttasambandi Íslands.

     Bullet5 Lesa meira...    Skrifað  Föstudagur, 04. Júní, 2004    376  lesendur
Heilræði fyrir skammbyssuskyttur

Skotfimi er andleg íþróttJón S. Ólason skrifar:

Eftirfarandi vann ég upp úr námskeiðum sem ég hef sótt fyrir þjálfara í skammbyssuskotfimi bæði hjá sænska skotsambandinu og alþjóðasambandinu. Íslenskir skotíþróttamenn leggja margir alltof lítið upp úr því að vinna með hausinn á sér svo ekki sé minnst á skrokkinn.
Ef menn ná að tileinka sér það sem stendur hér eru þeir í góðum málum. Ég held að flestir keppnismenn kannist við það að slæmu skotin koma þegar eitthvað klikkar í hausnum - oftast einbeitingin.

     Bullet5 Lesa meira...    Skrifað  Fimmtudagur, 25. Mars, 2004    1212  lesendur
Geymsla skotvopna

Eigendum ber að tryggja geymslu skotvopna óháð því hversu mörg þau eru.Ákveðins misskilnings virðist gæta í umræðunni um geymslu á skotvopnum og skotfærum. Það er ekki svo að eigi menn þrjár eða færri byssur að þá gildi engar sérstakar reglur  um geymslu skotvopna.  Í 33. grein reglugerðar um skotvopn og skotfæri 787/1998 segir eftirfarandi: “Eigendur eða umráðahafar skotvopna og skotfæra skulu ábyrgjast vörslur þeirra og sjá svo um, að óviðkomandi nái ekki til þeirra. Í því skyni skal húsnæði sem geymir skotvopn og skotfæri ávallt læst ef íbúar eru fjarverandi. Við lengri fjarveru skal auk þess sem að framan greinir gera skotvopn óvirkt t.d. með því að fjarlægja af því nauðsynlega hluta aðra en láshús. “

     Bullet5 Lesa meira...    Skrifað  Miðvikudagur, 17. Mars, 2004    615  lesendur
73 ára amma enn að keppa í Skeet og Trap

Joan Jarratt er meðlimur í Tucson Trap & Skeet klúbbnum í Arizona-fylki vestur í Bandaríkjunum. Hún er 73 ára gömul og er búin að keppa í bæði Skeet  og Trap í heil 50 ár, og er harðákveðin í að keppa á þessu ári eins og undanfarin.  Þrívegis hefur Joan unnið fylkismeistaratitla en það voru árin 1958, 1960 og 1962, en allt fram til ársins 2003 hefur hún lent nokkuð ofarlega á mótum og jafnvel sigra sum þeirra.  Hún sagðist hafa æft grimmt fyrir mótin í gamla daga, en í dag sé hún orðin mikið rólegri og mæti bara í mótin til að hafa gaman af og segist ekkert sérstaklega undirbúa sig fyrir þau.

     Bullet5 Lesa meira...    Skrifað  Föstudagur, 06. Febrúar, 2004    342  lesendur
Ellefu ára heimsmeistari í Skeet.

Aðeins fjórum mánuðum eftir að hann tók upp haglabyssu í fyrsta skipti, vann hinn ellefu ára gamli Jon Michael McGrath til gullverðlauna á heimsmeistaramóti í hinni amerísku útgáfu af skeet, sem haldið var í San Antonio í Texas s.l. haust. Ævintýrið hófst þegar hann var í skátabúðum í fyrrasumar, en þá var krökkunum m.a. boðið upp á að prófa að skjóta af haglabyssu.  Jon fékk "bakteríuna" með hraði og eftir að hafa fengið kennslu í helstu öryggisþáttum í meðferð skotvopna, ásamt því að fá eyrnahlífar og hlífðargleraugu, skellti piltur sér á skotsvæðið og þar héldu menn vart vatni yfir hinum meðfæddu hæfileikum þessa unga íþróttamanns.

     Bullet5 Lesa meira...    Skrifað  Mánudagur, 02. Febrúar, 2004    453  lesendur
Almennt um keppni í loftskammbyssu

Keppt er í Loftskammbyssu á Olympíuleikum, heimsmeistaramótum, Evrópumótum, norðurlandamótum, og smáþjóðaleikum. Hér heima á öllum mótum STÍ í skammbyssugreinum auk innanfélagsmóta. Hér á eftir fara helstu staðreyndir um keppni og iðkun í loftskammbyssu.

     Bullet5 Lesa meira...    Skrifað  Miðvikudagur, 31. Desember, 2003    337  lesendur
Keppnisálag í skotfimi

Dr. Åke Lundberg  er þýskur læknir sem sérhæfir sig í sálfræðimeðferðum en er sjálfur mjög fær fiðluleikari. Hann starfar við að halda námskeið um listina að starfa eða keppa undir álagi. Hefur hann meðal annars skrifað athyglisverðar ritgerðir um sviðshræðslu hljóðfæraleikara. Hægt er að heimfæra reynslu hans og kollega hans, hljóðfæraleikarana yfir á það sem skotfimikeppendur þurfa að takast á við í keppni. Það sem hér á eftir fylgir er lausleg samantekt og þýðing á kenningum hans.

     Bullet5 Lesa meira...    Skrifað  Laugardagur, 22. Nóvember, 2003    943  lesendur
Þurrþjálfun Loftskammbyssu-skotmanna, leiðin til aukins árangurs

Skotfimiþjálfari fjallar um gildi þess að þurrskjótaAllt í lagi, ég skal viðurkenna það að hafi ég einhvern tíman verið á mörkum þess að snúast frá því að vera “veiðiþjófur” yfir í að verða “veiðivörður”, þá var það á þessum tíma. Á þeim árum sem ég var í breska landsliðinu í loftskammbyssu-skotfimi og í samveldis-liðum, hafði ég algjöra óbeit og jafnvel hataði að þurr-æfa. Mér fannst það ekki bara leiðinlegt, heldur var það bjargföst trú mín að það væri algjörlega til einskis og eiginlega bara fyrir aumingja að stunda svona tepruskap. Hver var eiginlega tilgangurinn með því að mæta á æfingasvæðið og taka í gikkinn án þess að nokkuð gerðist, á sama tíma og maður gat verið að skjóta almennilega, með hvelli og gati í spjald.  Svo eins og 99% af æfingafélögum mínum, þá stundaði ég helst ekki þurr-æfingar, og nánast aldrei.   Auðvitað spurði þjálfarinn minn mig hvort ég væri ekki örugglega að þurr-skjóta eitthvað, og alltaf laug ég og svaraði, “Jú, ég geri það í nokkrum mæli”.

     Bullet5 Lesa meira...    Skrifað  Föstudagur, 21. Nóvember, 2003    948  lesendur


 Prenthæf síða  Prenthæf síða
 

Innskráning 




 


 Smelltu hér ef þú kemst ekki inn.
 Ekki meðlimur? Smelltu hér til að gerast meðlimur.
 
Skilaboð 
http://www.forlagid.is/?s=skotvopnab%C3%B3kin
 
Úr myndasafni 
STÍ loftgreinamót 21. febrúar 2004

Stofnandi : Einar
Birtingar : 271

Albúm uppfært síðast
STÍ loftgreinamót 22. janúar 2005
Landsmót Egilshöll 2. des 2004
Egilshöll Loftriffill 17 nóv 2004
Bikarmót Hafnarfirði 13.-14.8
 
Speki 

They couldn't hit an elephant at this dist. . . .
Killed in battle during US Civil War.

-- General John Sedgwick, Union Commander, d. 1864  
Ritstjórnarstefna 



Hér á skotfimi.is kemurðu ekki til með að finna neinar greinar um veiðar. Ritstjórnarstefnan snýst eingöngu um skotfimi sem íþróttagrein.
 

Íþróttaskotfélag Akureyrar hefur umsjón með skotfimi.is. Netfang: skotfimi@skotfimi.is . Allur texti er háður höfundarétti þeirra sem hann skrifa. Afritun án leyfis er með öllu óheimil.


Powered by the AutoTheme HTML Theme System
Page created in 1.217093 Seconds